Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði

1.jpg

Jarðskjálftaverkfræði

Tilgangur rannsókna í jarðskjálftaverkfræði á vegum Miðstöðvarinnar er að afla þekkingar á eðli og áhrifum jarðskjálfta. Helstu viðfangsefni eru:

  • Töluleg líkön af jarðskjálftum
  • Mælingar
  • Jarðskjálftaáraun
  • Kerfisgreining bygginga
  • Jarðskjálftavörn flókinna virkja
  • Áhættugreining bygginga
  • Jarðskjálftaþol vatnsaflsvirkjana
  • Jarðskjálftaþol lagnakerfa

 


Öryggi í jarðskjálftum



Almennar ráðleggingar um jarðskjálftavarnir

Hægt er að draga úr tjóni og minnka slysahættu í hugsanlegum jarðskjálftum með ýmsum ráðstöfunum. Eftirfarandi ábendingar eru almenns eðlis og eiga erindi til allra húseigenda.

Mælt er með að húsráðendur taki eftirfarandi til greina:

Tryggingar
Farið yfir tryggingar eða fáið fulltrúa tryggingafélagsins ykkar til að gera það. Miklu skiptir að vátryggingarupphæðir séu sem næst raunverulegu verðmæti innbús þannig að tjónið verði bætt á réttlátan hátt. Að hafa innbú ótryggt er óskynsamlegt. Sérstaklega er bent á að bætur Viðlagatryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar og bætur á innbúi við innbústryggingar. Brunatryggingin er skyldutrygging en ekki innbústryggingin.

Merkingar

Komið fyrir í anddyri teikningu sem sýnir hvar inntakslokar fyrir heitt og kalt vatn og rafmagnstafla eru staðsett í húsinu.

Merkið inntaksloka fyrir kalt og heitt vatn. Hafið lokana aðgengilega þannig að auðvelt sé að loka fyrir vatnið ef með þarf. Slíkt dregur úr líkum á vatnstjóni í hugsanlegum jarðskjálftum.

Frágangur hitaveituofna og forhitara (varmaskipta)
Víða eru hitaveituofnar ekki festir nógu tryggilega. Hætta er talin á að leki komi að kerfinu ef ofn fellur af ásetum í jarðskjálfta. Slíkt getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað án tafar fyrir vatnið. Einnig eru forhitarar víða illa festir og geta losnað og valdið tjóni. Sérstaklega á þetta við um gufuforhitara sem geta jafnframt verið hættulegir fólki ef gufa sleppur út.

Tryggið að hitaveituofnar geti ekki losnað af festingum og fallið niður. Mælt er með að fagmaður kanni í hverju tilfelli hvaða lausn er heppilegust til að festa ofnana tryggilega. Ýmsar sjálfvirkar lausnir eru til við að loka fyrir vatn ef upp kemur leki.

Tryggið að forhitarar séu vel festir. Mælt er með að fagmaður kanni í hverju tilfelli hvaða lausn er heppilegust til að festa forhitarana tryggilega.

Svefnherbergi
Svefnherbergið er það herbergi sem flestir eyða lengstum tíma í, allt að um þriðjungi ævinnar að því er talið er. Því skiptir miklu að skipuleggja svefnherbergið vel og vanda allan frágang innanstokksmuna. Eftirfarandi markmið ber að hafa í huga:

Komið í veg fyrir að hlutir geti dottið á rúm og meitt þann sem í því sefur.
Haldið útgönguleið auðri og tryggið að hlutir geti ekki dottið og lokað henni.

Sérstaklega er bent á eftirfarandi atriði:
Forðast skal að hafa rúm undir stórum glugga.
Forðast skal að hafa rúm undir hlöðnum milliveggjum.
Bókahillur, skápa og aðra þunga hluti ber að festa þannig að ekki sé hætta á að þeir detti, t.d. yfir rúm, skapi hindranir eða loki útgönguleiðum.
Myndir undir gleri á alls ekki að hengja fyrir ofan rúm. Forðast ber að hengja myndir og skraut nálægt rúmum.
Náttlampa og aðra brothætta hluti sem geta dottið nálægt rúmi ber að festa. Það dregur úr hættu á að glerbrot valdi óþarfa meiðslum þegar stigið er fram úr rúmi.
Gluggatjöld draga úr hættu við hugsanleg rúðubrot.
Vasaljós ber að hafa á aðgengilegum stað þannig að hægt sé að ná í það áður en stigið er fram úr rúmi. Hafa ber í huga að rafmagnslaust getur orðið í kjölfar jarðskjálfta.
Inniskór eiga að vera tiltækir við rúm og þá á skilyrðislaust að nota þegar farið er fram úr rúmi eftir jarðskjálfta, en ekki ganga berfættur.

Eldhús og þvottahús
Ísskápa, bakarofna og örbylgjuofna ber að festa þannig að ekki sé hætta á að þeir falli út úr innréttingum.
Efri eldhússkápar eru allvíða festir í hlaðna milliveggi. Mælt er með að festa þá þannig að ekki sé hætta á að þeir falli niður, t.d. með því að festa þá upp í steinsteypt loft eða burðarsperrur í tréþaki.

Öryggislæsingar (barnalæsingar) á skápum koma í veg fyrir að hlutir, svo sem glös og leirtau, falli niður á gólf. Brotið leirtau og hlutir í gangvegi geta valdið meiðslum.

Hættuleg efni og þunga hluti skal ávallt setja í neðstu hillur í skápum með öryggislæsingu ef þörf krefur.

Þvottavél og þurrkara ber að festa tryggilega. Þvottavél sem færist úr stað eða veltur getur rofið vatnslögn og valdið vatnsskaða. Vanda skal frágang festinga þar sem þurrkari stendur uppi á þvottavél.

Baðherbergi
Hætta í baðherbergi stafar einkum af glerbrotum. Speglar, glerhurðir á sturtuklefum, flöskur fyrir snyrtivörur og lyf geta brotnað. Æskilegt er að nota umbúðir úr plasti og "óbrjótanlegt" gler eftir því sem við verður komið.

Komið snyrtivörum og meðulum í glerumbúðum þannig fyrir að þessir hlutir geti ekki dottið, t.d. í tryggilega festum skáp með öryggislæsingu (barnalæsingu).

Stofa, borðstofa og sjónvarpsherbergi
Hillur og skápa ber að festa tryggilega í burðarveggi.
Munir í hillum skulu staðsettir þannig að þeir geti ekki fallið á þann sem situr nálægt þeim, t.d. fyrir framan sjónvarp. Setjið þunga hluti ávallt í neðstu hillurnar.

Æskilegt er að hurðir á skápum séu með öryggislæsingu (barnalæsingu), einkum ef glermunir eru geymdir í þeim.
Stór málverk og myndir á veggjum ber að hengja á króka eða járnfestingar. Nauðsynlegt er að gæta að hvort festing í veggnum er næg og hvort vírinn (þráðurinn) í myndinni er nógu sterkur. Ganga skal þannig frá, t.d. með öryggislykkju, að þráðurinn losni ekki af króknum eða myndin hristist ekki af festingunni.

Ljósakrónur skal festa tryggilega og nota skal öryggislykkju til að varna því að þær geti losnað af króknum.
Sjónvarpstæki og tölvur er æskilegt að festa.
Hljómflutningstæki er æskilegt að festa og staðsetja neðarlega í hillum.

Gangar og forstofur
Tryggið að útgönguleiðir séu greiðar. Forðist að staðsetja hluti á göngum eða í forstofu þar sem þeir geta valdið slysum eða lokað útgönguleið.

Geymsla og bílskúr
Hillur í geymslum skal festa þannig að þær velti ekki. Enn fremur skal ganga frá hlutum í geymslu þannig að þeir detti ekki og torveldi að nálgast búnað sem þarf að nota í kjölfar jarðskjálfta.
Ganga skal þannig frá hlutum í bílskúr að ekki sé hætta á að þeir detti á bíl sem er inni í bílskúrnum. Ekki er ráðlegt að hengja hluti fyrir ofan bílinn. Skápa og hillur skal festa tryggilega og setja skal þunga hluti, hættuleg efni og málningu í neðstu hillurnar. Notið öryggislæsingar (barnalæsingar) ef nauðsyn krefur.

Mælt er með því að láta bíla að jafnaði standa úti fremur en inni í bílskúr, einkum í þeim tilvikum þar sem bílskúrinn er ekki traustlega byggður. Enn fremur skal forðast að láta bíla standa nálægt húsi þar sem hætta er á að þeir geti skemmst vegna hruns.

Öryggisbúnaður
Í kjölfar jarðskjálfta má gera ráð fyrir að það verði rafmagnslaust um tíma. Enn fremur er líklegt að samgöngur geti raskast. Þá má einnig búast við skemmdum á húsum. Gler í rúðum getur brotnað. Upphitun með hitaveitu getur raskast. Því ætti fólk að vera undir það búið að þurfa bjarga sér á eigin spýtur, að minnsta kosti í stuttan tíma. Gott er að eiga lágmarksneyðarbúnað sem getur nýst við slíkar aðstæður.

Mælt er með að eftirfarandi sé ávallt tiltækt og í lagi:

  • Vasaljós ásamt vararafhlöðum, helst fyrir alla meðlimi hverrar fjölsyldu.
  • Útvarp með rafhlöðum.
  • Sjúkrakassi.
  • Slökkvitæki.
  • Skjólgóðar yfirhafnir sem verja gegn kulda og úrkomu.
  • Útilegubúnaður.
  • Matur og drykkjarföng (í litlu magni) sem eru geymsluþolin og krefjast ekki eldunaraðstöðu.

Enn fremur er mælt með að:

  • Tiltækur sé búnaður til að loka brotnum gluggum.

Viðbúnaður
Mælt er með að:

  • Heimilisfólk kynni sér leiðbeiningar um viðbrögð í jarðskjálfta frá Almannavörnum ríkisins sem er að finna meðal annars í símaskránni.
  • Heimilisfólk ræði saman um neyðarviðbrögð og æfi þau.
  • Heimilisfólk hafi ákveðið hvar á að hittast eða símanúmer sem hringt er í til að tilkynna um afdrif sín ef fjölskyldan er dreifð þegar náttúruhamfarir ríða yfir.
  • Heimilisfólk sem hefur aldur til viti hvar aðalrofi fyrir rafmagn er staðsettur.
  • Heimilisfólk viti hvar unnt er að loka fyrir kalda vatnið inn í húsið.
  • Heimilisfólk viti hvar unnt er að loka fyrir heita vatnið inn í húsið.
  • Einhver í fjölskyldunni hafi sótt námskeið í skyndihjálp.
  • Heimilisfólk kynni sér hvert á að tilkynna um slys eða eldsvoða.
  • Heimilisfólk kynni sér hvar næsta hjálparstöð er en á neyðartímum eru það skólabyggingar á öruggu svæði.

Hafið í huga að besta vörnin gegn tjóni og slysum í jarðskjálftum er þekking, athygli og raunhæfur viðbúnaður sem fjölskyldan hefur sjálf æft.

SÉRTÆKAR ÁBENDINGAR:

  • Tryggingar
  • Farið yfir tryggingar á gripahúsum.
  • Hugið að tryggingu á búfé og búfjárafurðum.
  • Hugið að tryggingu á vélum og tækjabúnaði.


Utanhúss

Varhugavert er að staðsetja rúllubagga í bratta og hafa baggastæður hár, sérstaklega ef menn, húsdýr og mannvirki gætu verið í hættu.

Fyrirbyggið að dráttarvélar og tæki geti runnið af stað í bratta, sérstaklega ef menn, húsdýr og mannvirki gætu verið í hættu.

Gripahús

  • Hugið að festingum á mjólkurtönkum, mjaltakerfum og fóðursílóum.
  • Hugið að ásetum á stálbitum, límtrésbitum og steinsteyptum bitum.
  • Hugið að festingum á upphengdum loftum, ljósabúnaði og loftræsibúnaði.
  • Hugið að frágangi á öllum lausum munum sem hugsanlega gætu skaðað fólk eða búfé. Gangið vel frá tölvu- og tæknibúnaði.

Véla- og verkfærageymslur

  • Hugið að festingum gastækja, rafsuðutækja o.þ.h.
  • Hugið vel að eldfimum og hættulegum efnum.
  • Varasamt er að hafa þunga/brothætta hluti ofan við vinnuaðstöðu og í háum hillum.